Um 90 manns mættu á ráðstefnu Saving Iceland í Reykjavíkur Akademíunni í gærkvöldi, Miðvikudaginn 23. Júlí. Fram komu indverski rithöfundurinn og sérfræðingur um áliðnaðinn, Samarendra Das ásamt Andra Snæ Magnasyni, höfundi Drauamlandsins. Þeir fjölluðu um áhrif álframleiðslu í þriðja heiminum og hina fölsku goðsögn um svokallaða ‘hreina og græna’ álframleiðslu. Myndband frá ráðstefnunni er í undirbúningi og mun birtast hér við fyrsta tækifæri.
Þriðjudaginn 21. Júlí hélt Samarendra fyrirlestur um tengsl álframleiðslu og stríðsrekstri. Fundurinn fór fram í Friðarhúsi Samtaka Herstöðvarandstæðinga og var mjög vel sóttur. Í kvöld heldur hann svo fyrirlestur í Keflavík.
Frekara lesefni:
- ‘Double Death, Aluminium’s Links to Genocide’ eftir S. Das and F. Padel, in Economic and Political Weekly
- ‘Agya, What do You Mean by Development?’ eftir Das and Padel. An exhaustive account of the aluminium industry in India.
- Saving Iceland stöðvar umferð að álveri Rio Tinto-Alcan í Hafnarfirði (inniheldur nauðsynlegar upplýsingar um tengsl ALCAN og áliðnaðarins við menningarleg þjóðarmorð í Afríkur og Asíu)
- Að lokum getur þú skoðað myndasafnið ‘Struggles in India’
Umfjöllun á Mbl.is, Fjölmenni á Saving Iceland fundi:
Fundur á vegum Saving Iceland samtakanna fer nú fram að viðstöddu fjölmenni í Reykjavíkur Akademíunni.
Á fundinum koma fram Samarendra Das, indverskur rithöfundur, og aðgerðasinni , og Andri Snær Magnason, rithöfundur.
Á vef samtakanna kemur fram að Samarendra muni aðallega fjalla um áhrif álframleiðslu á þriðja heiminn, auk þess sem hann og Andri muni brjóta á bak aftur goðsögnina um svokallaða græna álframleiðslu.